Norski knattspyrnumaðurinn Niklas Jensen Wassberg leikur ekkert með Brann í norsku úrvalsdeildinni á komandi keppnistímabili vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir á síðasta ári.
Freyr Alexandersson tók við þjálfun Brann á dögunum en félagið hafnaði í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Wassberg, sem er tvítugur, er á meðal efnilegustu leikmanna Brann en hann lék þrjá leiki með liðinu í norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og þá á hann að baki 18 landsleiki fyrir yngri landslið Noregs.
„Niklas er á erfiðum stað og hefur ekki áhuga á því að ræða við fjölmiðla eins og staðan er í dag. Fjölmiðlar eru vinsamlegast beðnir um að virða þá beiðni,“ segir meðal annars í tilkynningu Brann.