Engir stuðningsmenn hollenska knattspyrnuliðsins Feyenoord verða á Stade Pierre-Mauroy leikvanginum í Lille í Frakklandi þegar félögin mætast þar í kvöld í lokaumferð deildarkeppni Meistaradeildar karla.
Franska innanríkisráðuneytið synjaði Feyenoord um leyfi til að koma með tvö þúsund áhorfendur á leikinn vegna atvika sem hafa átt sér stað í fyrri heimsóknum liðsins til Frakklands.
Alvarlegar óeirðir urðu í Nancy árið 2006 og í Marseille árið 2022 þar sem meiðsli urðu á fólki, skemmdir á eignum og margir stuðningsmenn Feyenoord voru handteknir.
Ráðuneytið sagði í yfirlýsingu að af 3.600 stuðningsmönnum Feyenoord sem væntanlegir voru til Lille væru 500 á lista yfir mjög varasama aðila. Þá hefðu aðeins 2.600 þeirra fengið miða á leikinn sem hefði þýtt að eitt þúsund stuðningsmenn hefðu verið miðalausir í nágrenni vallarins og hefðu getað valdið miklum vandræðum.
Í yfirlýsingu frá Feyenoord segir að félagið sé gríðarlega vonsvikið yfir því að mál hafi þróast á þennan veg, það hefði gerst allt sem sínu valdi stóð til að stuðningsmenn félagsins gætu mætt á leikinn, en ekki væri annað hægt en að sætta sig við niðurstöðuna.
Þó Belgía sé á milli Hollands og Frakklands eru aðeins 226 kílómetrar á milli Rotterdam og Lille og því fljótlegt að fara þar á milli.
Feyenoord og Lille, sem Hákon Arnar Haraldsson leikur með, eru jöfn að stigum fyrir lokaumferðina í kvöld, með 13 stig úr sjö leikjum, og eru í 11. og 12. sæti Meistaradeildarinnar. Sigurliðið í leiknum getur komist í hóp átta efstu liðanna og þar með komist beint í 16-liða úrslitin.