Borga hálfan milljarð fyrir Íslendinginn

Mikael Egill Ellertsson.
Mikael Egill Ellertsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenski knattspyrnumaðurinn Mikael Egill Ellertsson er að ganga til liðs við ítalska A-deildarfélagið Genoa frá Venezia.

Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gi­anluca Di Marzio greindi frá þessu í gær en Genoa borgar í kringum 3,5 milljónir evra fyrir íslenska landsliðsmanninn.

Það samsvarar rúmlega 511 milljónum íslenskra króna en hann hefur leikið 21 leik með Venezia í ítölsku A-deildinni á tímabilinu og skorað í þeim tvö mörk.

Mikael, sem er 22 ára gamall, hefur verið á Ítalíu frá árinu 2018, fyrst með SPAL og Spezia en síðar með Venezia frá ársbyrjun 2023. Samkvæmt Di Marzio verður hann lánaður aftur til Venezia út þetta tímabil en leikur með Genoa frá og með komandi sumri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert