Hákon er rétti maðurinn í markið

Hákon Rafn Valdimarsson er á mála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford.
Hákon Rafn Valdimarsson er á mála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Danska knattspyrnufélagið FC Köbenhavn er að leita að nýjum aðalmarkverði og hefur verið bent á að Hákon Rafn Valdimarsson, landsliðsmarkvörður Íslands, sé rétti maðurinn fyrir félagið.

Kenneth Emil Petersen, knattspyrnusérfræðingur hjá Viaplay, leggur til í samtali við Tipsbladet að forráðamenn FCK reyni að ná í Hákon frá Brentford, þar sem hann er varamarkvörður, en danska félagið hefur áður reynt að fá hann í sínar raðir.

Petersen hrósar Hákoni mjög fyrir frammistöðu sína með íslenska landsliðinu, bendir sérstaklega á leik Íslands gegn Portúgal í nóvember 2023, máli sínu til stuðnings, og að hann hafi  verið valinn markvörður ársins í Svíþjóð þegar hann lék með Elfsborg.

„Það væri spennandi að fá hann í úrvalsdeildina," segir Petersen við Tipsbladet.

Hákon Rafn kom til Brentford frá Elfsborg í janúar 2024 en hefur enn aðeins spilað einn leik með liðinu í ensku úrvalsdeildinni. Hann er samningsbundinn enska félaginu til 2028.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert