Sönderjyske ætlar að leita annað

Róbert Orri Þorkelsson.
Róbert Orri Þorkelsson. mbl.is/Hákon

Ekkert virðist verða af því að knattspyrnumaðurinn Róbert Orri Þorkelsson gangi til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið Sönderjyske.

Róbert Orri er við æfingar hjá Sönderjyske í Alicante á Spáni og talið var að félagið myndi semja við hann til þriggja ára.

Tipsbladet segir hins vegar í dag að samkvæmt sínum heimildum hafi félagið ákveðið að leita annað eftir nýjum varnarmanni. 

Róbert Orri er laus allra mála frá CF Montréal í Kanada, sem hann lék með í bandarísku MLS-deildinni, en hann var í láni hjá Kongsvinger í Noregi á síðasta ári.

Uppfært:
Sönderjyske kynnti í dag til sögunnar nýjan varnarmann, Matti Olsen, sem kemur frá Hvidovre.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert