Vilja ekki leggja niður myndbandadómgæsluna

Norðmenn eru ekki hrifnir af myndbandsdómgæslu.
Norðmenn eru ekki hrifnir af myndbandsdómgæslu. AFP/Glyn Kirk

Stjórn norska knattspyrnusambandsins vill ekki fara eftir tilmælum félaganna í efstu deildum karla í knattspyrnu þar í landi varðandi myndbandadómgæslu (VAR).

Tvö undanfarin ár hefur VAR verið notað í úrvalsdeild karla en í síðustu viku voru greidd atkvæði um málið á fundi samtaka félaganna í tveimur efstu deildum karla og niðurstaðan var sú að þau vildu að myndbandadómgæslan yrði lögð niður.

Þar var samþykkt að leggja fyrir ársþing norska knattspyrnusambandsins ósk frá félögunum um að VAR yrði  tekið úr umferð í landinu eins fljótt og mögulegt væri.

Lise Klaveness, formaður sambandsins, sagði á fréttamannafundi í dag að stjórnin myndi leggja fyrir þingið að haldið yrði áfram með myndbandadómgæsluna.

„Við getum ekki lagt niður verkefni sem svo margir hafa fjárfest í, hefur aðeins verið notað í tvö keppnistímabil og er orðið afar mikilvægur hluti af keppni félagsliða og landsliða í Evrópu," sagði Klaveness á fréttamannafundinum.

„Við getum ekki tekið besta hjálpartæki dómaranna af þeim. Það eru þeir sem taka mikilvægustu ákvarðanirnar í knattspyrnuleikjum, en samt eru það þeir sem hafa minnstar upplýsingar um hvað gerðist. Það væri óábyrgt. Dómarar eru líklega viðkvæmasti hópurinn í knattspyrnufjölskyldunnni," sagði Klaveness.

Ársþingið verður haldið í mars og þar hafa öll félög í Noregi, ekki bara félögin í efstu deildunum, atkvæðisrétt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert