Vill fá Sævar til Noregs

Sævar Atli Magnússon hefur leikið með Lyngby frá haustinu 2021.
Sævar Atli Magnússon hefur leikið með Lyngby frá haustinu 2021. Ljósmynd/Lyngby

Freyr Alexandersson vill fá Sævar Atla Magnússon til liðs við sitt nýja félag í norsku knattspyrnunni, Brann.

Bergens Tidende segir að Sævar sé á óskalista Freys en samningur hans við Lyngby í Danmörku rennur út í sumar.

Sævar er uppalinn hjá Leikni í Reykjavík, eins og Freyr, og fékk sitt fyrsta tækifæri í meistaraflokki undir hans stjórn, þá aðeins 15 ára gamall. Síðan var Freyr þjálfari Sævars hjá Lyngby í tvö og hálft ár, þar til Freyr fór til Kortrijk í Belgíu í ársbyrjun 2024.

Freyr var ráðinn þjálfari Brann 13. janúar og skrifaði undir samning við félagið til ársloka 2027.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert