Enska landsliðskonan Georgia Stanway leikur ekki meira með Þýskalandsmeisturum Bayern München í knattspyrnu á þessu keppnistímabili.
Stanway sleit liðband í hné á æfingu liðsins, fór beint í uppskurð og verður frá keppni fram á sumar.
Þetta er mikið áfall fyrir lið Bayern sem er í einhverri tvísýnustu baráttu sem um getur um þýska meistaratitilinn, ásamt því að vera í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Glódís Perla Viggósdóttir og samherjar búa sig undir seinni hluta tímabilsins sem hefst um komandi helgi eftir vetrarfríið en þar skilur eitt stig að fjögur efstu liðin. Eintracht Frankfurt, Bayern og Leverkusen eru öll með 29 stig og Wolfsburg er með 28 stig. Bayern sækir RB Leipzig heim á sunnudaginn.
Georgia Stanway er 26 ára sóknartengiliður sem kom til Bayern frá Manchester City árið 2022 og hefur skorað 16 mörk í 52 deildarleikjum fyrir félagið. Hún hefur skorað 21 mark í 75 landsleikjum fyrir England þar sem hún varð Evrópumeistari árið 2022 og fékk silfrið á HM 2023.