Enski knattspyrnumaðurinn Jordan Henderson er óvænt á förum frá hollenska knattspyrnufélaginu Ajax og til Mónakó í Frakklandi.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá á samfélagsmiðlinum X.
Henderson kom til Ajax frá Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu í janúar á síðasta ári og var því aðeins í eitt ár í herbúðum hollenska stórliðsins.
Félagaskiptin gætu opnað dyr Kristians Nökkva Hlynssonar að byrjunarliði Ajax en hann hefur mikið verið á bekknum á tímabilinu og virtist fyrr í vikunni vera á leiðinni frá félaginu sem lánsmaður til Spörtu í Rotterdam.