Landsliðskonan í ensku deildina

Hlín Eiríksdóttir fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu.
Hlín Eiríksdóttir fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur samið við enska félagið Leicester City um að leika með liðinu næstu tvö og hálft ár, til sumarsins 2027.

Hlín kemur frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstad þar sem hún skrifaði nýverið undir nýjan samning.

Leicester spilar í ensku úrvalsdeildinni og er þar í 11. sæti af tólf liðum, fjórum stigum fyrir ofan botnlið Crystal Palace, en aðeins eitt lið fellur úr deildinni í vor.

Sóknarmaðurinn var markahæsti leikmaður Kristianstad á síðasta tímabili með 15 mörk í 25 leikjum í sænsku úrvalsdeildinni, og var jafnframt næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar árið 2024.

Samtals skoraði hún 36 mörk í 90 leikjum á fjórum árum í deildinni með Kristianstad og Piteå.

Þar með leika nú tveir Íslendingar í deildinni á Englandi en Dagný Brynjarsdóttir er leikmaður West Ham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert