„Mjög skrítin vinnubrögð“

Róbert Orri Þorkelsson á æfingu með U21-árs landsliði Íslands.
Róbert Orri Þorkelsson á æfingu með U21-árs landsliði Íslands. mbl.is/Karítas

Knattspyrnumaðurinn Róbert Orri Þorkelsson kveðst undrandi á vinnubrögðum danska félagsins Sönderjyske eftir að ákvörðun um að semja við hann var skyndilega dregin til baka.

Danski miðillinn Tipsbladet greindi frá því fyrr í vikunni að Róbert Orri væri langt kominn með að semja við Sönderjyske. Hann ætti aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun og myndi svo skrifa undir samning til sumarsins 2028.

Róbert Orri fór til Alicante á Spáni þar sem Sönderjyske er í æfingaferð og æfði með liðinu. Í gær var hins vegar tilkynnt um komu annars miðvarðar, Matta Olsen, til Sönderjyske og fullyrti Tipsbladet þá að ekkert yrði af fyrirhuguðum skiptum Róberts Orra til félagsins.

„Ég fór með þeim tilgangi að skrifa undir samning við Sönderjyske. Þetta voru mjög skrítin vinnubrögð en ég get ekki stjórnað því. Nú tek ég bara næstu skref með mínum umboðsmönnum og við sjáum til hvað gerist,“ sagði Róbert Orri í samtali við Fótbolta.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert