Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er búinn að skora tvö mörk með stuttu millibili fyrir Real Sociedad gegn PAOK frá Grikklandi í lokaumferð deildarkeppni Evrópudeildarinnar í San Sebastian á Spáni.
Hann kom Real Sociedad yfir með fallegum skalla eftir fyrirgjöf frá hægri á 44. mínútu leiksins, 1:0, og þannig er staðan í hálfleik.
Hann kom reyndar boltanum aftur í netið í uppbótartímanum, setti þá boltann í markvörðinn og inn með skemmtilegri hælspyrnu, en markið var dæmt af þar sem boltinn var talinn hafa farið aftur fyrir endamörk áður en Orri snerti hann.
Og seinni hálfleikur var rétt nýhafinn þegar hann skoraði mjög svipað mark á 48. mínútu, aftur með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri, 2:0 fyrir Real Sociedad.
Liðin berjast um dýrmæt stig en þau voru fyrir leikinn jöfn með 10 stig og þurftu bæði a.m.k. stig til að gulltryggja sig inn í umspil keppninnar.
Orri hefur nú skorað þrjú mörk í keppninni fyrir Real Sociedad en hann skoraði einnig gegn Viktoria Plzen í Tékklandi í nóvember. Áður hafði hann skorað fimm mörk í Evrópuleikjum fyrir FC Köbenhavn.