Franski sóknarmaðurinn Mathys Tel vill fara frá þýska stórveldinu Bayern München áður en félagaskiptaglugganum í janúar verður lokað eftir helgi. Mikill áhugi er á táningnum.
Tel er 19 ára gamall og samkvæmt breska ríkisútvarpinu hafa ensk stórlið á við Manchester United, Arsenal, Chelsea og Tottenham Hotspur áhuga á að semja við hann.
„Já, Mathys Tel vill fara. Að láni eða alfarið? Við munum skoða alla möguleika. Ég hef sjaldan áður fengið jafn mörg símtöl frá félögum vegna eins leikmanns,“ sagði Max Eberl, íþróttastjóri Bayern, um Tel á dögunum.
Tel hefur verið í litlu hlutverki hjá Bæjurum á yfirstandandi tímabili og vill komast annað til þess að fá að spila fleiri mínútur.