Sú dýrasta verður næstdýrust

Keira Walsh í leik með enska landsliðinu.
Keira Walsh í leik með enska landsliðinu. AFP/Lindsey Parnaby

Chelsea hefur komist að samkomulagi við Barcelona um kaup á ensku landsliðskonunni Keiru Walsh fyrir 800 þúsund pund, jafnvirði tæplega 140 milljóna íslenskra króna, og þar með verður hún næstdýrasta knattspyrnukona heims.

Walsh hefur reyndar áður verið sú dýrasta í heimi en það var árið 2022 þegar Barcelona keypti hana af Manchester City fyrir 400 þúsund pund.

Á dögunum sló Chelsea hins vegar metið með því að kaupa bandaríska varnarmanninn Naomi Girma af San Diego Wave fyrir 900 þúsund pund, jafnvirði 157 milljóna íslenskra króna.

Í millitíðinni var Racheal Kund­an­anji frá Sambíu dýrust þegar Bay FC í Bandaríkjunum keypti hana af Madrid CFF á Spáni fyrir jafnvirði 685 þúsund punda.

Keira Walsh er 27 ára gömul og leikur sem miðjumaður. Hún á að baki 80 landsleiki fyrir Englands hönd og var í Evrópumeistaraliði Englendinga árið 2022 og silfurliðinu á HM 2023. Þá varð hún enskur meistari með Manchester City árið 2016 og bikarmeistari þrisvar með liðinu en á Spáni hefur hún orðið Evrópumeistari tvisvar í röð með Barcelona, sem og Spánarmeistari í bæði skiptin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert