Genoa búið að kaupa Mikael

Mikael Egill Ellertsson
Mikael Egill Ellertsson Ljósmynd/Alex Nicodim

Ítalska knattspyrnufélagið Genoa hefur gengið frá kaupum á íslenska landsliðsmanninum Mikael Agli Ellertssyni frá Venezia. Greiðir félagið 3,5 milljónir evra fyrir kantmanninn.

Mikael lýkur þó tímabilinu með Venezia sem lánsmaður og skiptir síðan alfarið yfir til Genoa í sumar. Patrick Vieira goðsögn Arsenal er stjóri Genoa.

Íslenski kantmaðurinn kom til Venezia frá Spezia í janúar fyrir tveimur árum. Átti hann sinn þátt í að Venezia fór upp í ítölsku A-deildina á síðustu leiktíð. Hann hefur í vetur leikið 21 af 22 leikjum liðsins í deildinni og skorað tvö mörk.

Venezia er sem stendur í 19. og næstneðsta sæti deildarinnar með 16 stig á meðan Genoa er í 10. sæti með 26 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert