Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson skoraði mark NAC Breda þegar liðið gerði jafntefli við Heracles Almelo, 1:1, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Markið skoraði Elías Már strax á fjórðu mínútu. Lék hann allan leikinn í fremstu víglínu hjá Breda.
Elías Már hefur verið óstöðvandi að undanförnu en hann hefur skorað fimm mörk í síðustu sex deildarleikjum fyrir Breda, sem er í áttunda sæti deildarinnar.