Knattspyrnustjórinn spænski Oscar García er kominn í þriggja leikja bann í efstu deild Mexíkó fyrir að sparka í leikmanninn James Rodríguez í leik Guadalajara og Leon.
García, sem stýrir Guadalajara, reitti leikmenn Leon til reiði þegar hann kastaði boltanum í burtu þegar Leon átti innkast. Í kjölfarið ýtti Nicolas Fonseca leikmaður Leon spænska stjóranum í átt að varamannabekkjunum.
Sauð upp úr vegna þessa og nýtti García þá tækifærið til að sparka í Kólumbíumanninn. Þjálfarinn fékk rautt spjald fyrir vikið og er nú kominn í bann.
García stýrði m.a. Brighton og Watford á Englandi áður en hann flutti til Mexíkó.