Vala Flosadóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR, varð í kvöld Evrópumeistari í stangarstökki 22 ára og yngri, en mótið er haldið í Gautaborg í Svíþjóð. Vala stökk 4 metra og 30 sentimetra sem er 10 sentimetrum hærra en hún hefur stokkið á þessu ári. Nastja Ryshich frá Þýskalandi varð önnur með 4,25 metra, en hún varð heimsmeistari innanhúss í stangarstökki kvenna á HM í Japan í mars. Þórey Edda Elísdóttir varð í fimmta sæti í dag er hún stökk 4.15 metra, en hún hefur hæst stokkið 4.22 metra í sumar.