Njarðvík deildarmeistari í körfuknattleik

Njarðvíkingar urðu deildarmeistarar í körfuknattleik í kvöld. Þeir lögðu granna sína í Keflavík með 80 stigum gegn 70 stigum heimamanna. Haukar lentu í öðru sæti í deildini en þeir sigruðu KFÍ örugglega í kvöld með 110 stigum gegn 75. Grindvíkingar léku gegn Tindastól og sigruðu 86:80. Með sigrinum tryggði Grindavík sér þriðja sætið í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert