Vilhjálmur og Edda vörðu Íslandsmeistaratitla sína í kata

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson varði í dag Íslandsmeistaratitil sinn í karate (kata) karla eftir jafna og spennandi keppni við Halldór Svavarsson og Jón Inga Þorvaldsson. Edda Lúvísa Blöndal varði sömuleiðis Íslandsmeistaratitil sinn í flokki kvenna í sjötta sinni, en hún hefur borið höfuð og herðar yfir aðra keppendur í kvennaflokknum undanfarin ár. Í hópkata vann Þórshamar töfaldan sigur, A-lið félagsins sigruðu bæði í kvenna- og karlaflokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka