Hicham El Guerrouj, heimsmethafi í 1.500 metra og míluhlaupi karla frá Marokkó, vann í dag sín fjórðu gullverðlaun í 1.500 m hlaup á heimsmeistarmóti, er hann kom fystur í mark í greinni á heimsmeistaramótinu sem nú fer fram í París. El Guerrouj hljóp vegalengdina á 3.31,77 mínútum og var tæpum sex sekúndum frá eigin heimsmeti.