Bandaríkin unnu Litháen í leik um þriðja sætið í körfuboltakeppni karla á ólympíuleikunum í Aþenu í kvöld. Lokatölurnar voru 104:96. Shawn Marion skoraði 22 stig fyrir Bandaríkin og Allen Iverson bætti 15 stigum við. Arvydas Macijauskas skoraði 24 stig fyrir Litháen.