Úkraína lagði Frakkland, 21:18, í leik um bronsverðlaunin í handknattleik kvenna á ólympíuleikunum í Aþenu í dag. Í karlaflokki hrepptu Spánverjar 7. sætið með sigri á Norður-Kóreu, 31:24 en nú stendur yfir leikur Grikkja og Frakka um 5. sætið. Í kvöld leika Rússar og Ungverjar um bronsverðlaunin. Úrslitaleikirnir verða leiknir á morgun en þá mætast Þjóðverjar og Króatar í karlaflokki og Danir og Kóreumenn í kvennaflokki. Á myndinni sést Natalya Lyapina og Lyudmyla Shevchenko, leikmenn Úkraínu í kvennaflokki, stöðva franska leikmanninn Pecqueux Rolland.