Íslandsmeistarinn í badminton, Ragna Ingólfsdóttir úr TBR, verður að taka sér mánaðarfrí frá keppni þar sem í ljós er komið að fremra krossband í vinstri fæti er slitið. Sérfræðingar sem hafa skoðað Rögnu telja góðan möguleika fyrir hana að halda áfram æfingum og keppni þrátt fyrir þetta. Ragna meiddist á Opna hollenska mótinu í síðasta mánuði þegar hún rann til á mjög sleipu keppnisgólfi í viðureign í annarri umferð mótsins. Við það kom högg á hnéð og þá slitnaði krossbandið.