Daníel og Ísak í 14. sæti

Daníel og Ísak við keppnisbifreið sína í Jedburgh í morgun.
Daníel og Ísak við keppnisbifreið sína í Jedburgh í morgun. mbl.is/Gerða


Daníel Sigurðsson og Ísak Guðjónsson urðu í 14. sæti í Border Counties rallinu sem fram fór í Skotlandi í dag. Þeir luku keppni í 5. sæti í sínum flokki í
Evo-Challenge mótaröðinni.

Daníel og Ísak fóru hratt af stað í morgun og voru í 5. sæti eftir 1. sérleið.
Þeir óku útaf og festu bílinn á 2. sérleið og töpuðu þar tveimur mínútum. Við
það féllu þeir niður í 23. sæti. Þeir óku af öryggi eftir það og fikruðu sig
upp töfluna eftir því sem leið á rallið.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka