Keppni í nýrri meistaradeild Reykjavíkur í sundi hófst í gærkvöld en þar keppa Reykjavíkurfélögin innbyrðis, tvö og tvö í senn. KR vann Fjölni, 84:67, í fyrstu viðureigninni.
Fyrirkomulagið er á þá leið að tveir keppendur frá hvoru félagi keppa í hverri grein fyrir sig.
Ármann og Ægir áttu einnig að mætast í gærkvöld en Ármenningar mættu ekki til leiks og þar með var Ægi dæmdur sigur.
Öll úrslit í viðureign KR og Fjölnis er að finna á vef KR-inga.