Björninn og Skautafélag Reykjavíkur áttust við í mögnuðum leik á Íslandsmótinu í íshokkí karla í gær í Egilshöll. Björninn þurfti að sigra með fjögurra marka mun til þess að tryggja sér sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn gegn Skautafélagi Akureyrar. Það tókst hjá Birninum sem hafði betur 9:4. Ómar Óskarsson ljósmyndari Morgunblaðsins var á leiknum í gær og hér má sjá brot af þeim myndum sem hann tók.