Ragna Ingólfsdóttir var ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í 16 manna úrslitum í einliðaleik kvenna í badminton í Manchester nú síðdegis.
Ragna, sem vann Söndru Chirlaque frá Spáni örugglega í 1. umferðinni í morgun, fór létt með Mille Kongstad frá Grænlandi í 2. umferðinni. Ragna vann, 21:7 og 21:8, og keppir næst í 16 manna úrslitunum síðdegis á morgun.
Þar mætir hún Judith Meulendijks frá Hollandi sem sigraði Simone Prutsch frá Austurríki örugglega í dag, 21:8 og 21:12. Meulendijks er geysisterk, er í 28. sæti heimslistans en Ragna er í 171. sæti.