Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar var gríðarlega ánægður með sína menn sem sigruðu Íslandsmeistara FH örugglega, 30:26, á Akureyri kvöld. Akureyringar voru frábærir í fyrri hálfleik og höfðu níu marka forystu í leikhléi.
„Ég held að fyrri hálfleikurinn hafi verið eitt það besta sem liðið hefur sýnt síðan ég kom,“ sagði Atli við mbl.is að leikslokum. Atli nefndi að hæðir og lægðir væru í handboltanum: „Við vorum svakalega lélegir fyrir viku en það breyttist heldur betur núna. Vonandi verður þetta hugarfar í liðinu á móti Fram.“ Liðin mætast í Reykjavík á föstudaginn gríðarlega mikilvægum leik. „Ég held að í þessum ham eigi ekkert lið séns í okkur,“ sagði Atli - en bætti við að liðið gæti farið niður á miklu lægra plan, eins og það hefði t.d. leikið í siðustu viku þegar það steinlá fyrir Haukum.