Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Ægi, mun keppa í 1.500 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London síðar í sumar. Staðfesting barst í dag um þátttöku Antons Sveins á leikunum en í gær fékk Jakob Jóhann Sveinsson farseðilinn á Ólympíuleikana.
Fleiri íslenskir sundmenn bíða í startholunum en fastlega er reiknað með að Árni Már Árnason og Ragnheiður Ragnarsdóttir fái staðfestingu síðar í vikunni um að þau hafi fengið keppnisréttinn.