Lance Armstrong steig til hliðar sem framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Livestrong styrktarsjóðsins í vikunni. Armstrong stofnaði sjóðinn sem styrkir krabbameinsrannsóknir.
Margir töldu að lyfjahneyksli Armstrong myndi veikja stöðu sjóðsins. Forsvarsmenn hans segja svo ekki hafa verið og að styrktaraðilar og stuðningsmenn standi enn við bak sjóðsins.