Gunnlaugur með besta árangur í heimi í ár

Gunnlaugur Júlíusson
Gunnlaugur Júlíusson mbl.is/Golli

Tveir íslendingar, Gunnlaugur Júlíusson og Ágúst Guðmundsson, tóku þátt í 24 tíma hlaupi sem haldið var í íþróttamiðstöðinni Ratipharm Arena í Espoo í Finnlandi dagana 23. - 24. febrúar.

Hlaupið fór fram innandyra á 390 metra langri braut. Þetta er í sjötta sinn sem 24 tíma hlaup er haldið á þessum stað og hefur það unnið sér sess sem eitt af stærstu innanhússmótum í heiminum í þessari íþróttagrein. Keppendur komu víða að. Auk þess að koma frá öllum Norðurlandanna þá voru þeir frá Rússlandi, Ungverjalandi, Austurríki, Japan, Bretlandi, Írlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Alsír, Austurríki og Bandaríkjunum. Alls tóku 80 karlar og 21 kona þátt í hlaupinu.

Gunnlaugur hljóp samtals 189.689 metra og endaði í 10. sæti. Ágúst hljóp 120.912 metra og endaði í 51. sæti. Árangur Gunnlaugs er besti árangur í heiminum í ár í aldursflokknum yfir 60 ára karla. Hann hefði dugað til 11. sætis á heimslista á síðasta ári af þeim sem eru 60 ára og eldri.

Gunnlaugur var með elstu keppendum á mótinu en einungis fimm keppendur voru eldri en hann. Sigurvegari í karlaflokki var Pasi Penttinen sem hljóp 237.652 metra og sigurvegari í kvennaflokki var Sumie Inagaki frá Japan sem hljóp 220.775 og sigraði hún í fimmta sinn í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert