Anton Sveinn McKee setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 400m skriðsundi á LA Invitational mótinu í Bandaríkjunum í nótt.
Anton Sveinn synti í A-úrslitum og bætti eigið Íslandsmet um 0,31 hundruðustu og fór á tímanum 3.54,36 en fyrra met hans var 3.54,67 en það setti hann á HM í Barcelona í júlí 2013.
Anton Sveinn hafnaði í fjórða sæti sem er virkilega flottur árangur hjá honum á þessu sterka móti.