Aníta Hinriksdóttir var nú rétt í þessu að koma í mark í undanrásum 800 metra hlaups kvenna á heimsmeistaramóti unglinga í Eugene í Bandaríkjunum og tryggði sér sæti í undanúrslitunum á morgun
Aníta hljóp í fyrsta riðli og var strax í hópi fremstu hlaupara en tók forystuna þegar rúmlega 200 metrar voru eftir og kom langfyrst í mark á tímanum 2:03:41 mínútum. Það var besti tíminn af riðlunum fjórum inn í undanúrslitin.
Keppt var í fjórum riðlum í undanrásum og komust þrjár fyrstu í hverjum riðli áfram í undanúrslit og svo fjórar til viðbótar með bestu tímana. Það komast því samtals 16 í undanúrslit.