Magnús og Hulda Lilja siglingafólk ársins

Magnús Arason og Hulda Lilja Hannesdóttir.
Magnús Arason og Hulda Lilja Hannesdóttir. Ljósmynd/Siglingasambandið

Magnús Arason og Hulda Lilja Hannesdóttir frá Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey voru kosin siglingamaður og siglingakona ársins á lokahófi Siglingasambands Íslands sem fór fram í gærkvöldi.

Áhöfnin á Dögun, einnig frá Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey sem er Íslandsbikarmeistari siglinga 2014 en í áhöfn er Þórarinn Stefánsson, Magnús Waage, Magnús Arason og Ólafur Már Ólafsson.

Önnur verðlaun:

Siglingaefni ársins er Þorgeir Ólafsson (Brokey)

Sjálfboðaliði ársins er Aðalsteinn Jens Loftsson (Ýmir)

Strandbikarinn fékk Áki Áskeirsson (Brokey)

Ævintýrabikarinn fékk Kai Logemann (Brokey)

Kajakmaður ársins er Eymundur Ingimundarson

Kajakkona ársins er Klara Bjartmarz

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert