Grétar Rafn í starfsþjálfun hjá AZ

Grétar Rafn Steinsson.
Grétar Rafn Steinsson. mbl.is/Eggert

Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, verður við störf hjá hollenska félaginu AZ Alkmaar út þetta tímabil.

Grétar hefur stundað nám í knattspyrnustjórnun við stofnun Johans Cruyffs í Hollandi og hluti af náminu er að vinna hjá félagi en þar er yfirleitt um launalaust starf að ræða. AZ skýrði frá þessu á vef sínum í gær og þar kom fram að Grétar kæmi að stjórnunarstörfum utan vallar en ekki beint að þjálfun liðsins.

Grétar Rafn, sem er 32 ára gamall, varð að leggja skóna á hilluna á síðasta ári eftir þrálát meiðsli. Hann lék 63 úrvalsdeildarleiki með AZ á árunum 2005 til 2008 og fór þaðan til enska félagsins Bolton þar sem hann spilaði 126 leiki í úrvalsdeildinni á fjórum árum. Grétar lék 46 landsleiki fyrir Ísland en sá síðasti var gegn Noregi haustið 2012, á Laugardalsvellinum, þegar Ísland hóf undankeppni HM 2014 með góðum sigri, 2:0.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert