Bretar hafa ákveðið að leggja inn kæru vegna 800 metra hlaupsins sem Aníta Hinriksdóttir tók þátt í á Evrópumeistaramótinu í Prag í dag.
Aníta kom þriðja í mark í hlaupinu og er örugg um sæti í úrslitum en á undan henni urðu Selina Büchel frá Sviss og Anastasia Bazdireva frá Rússlandi, sem komust fram úr í lokin. Jenny Meadows sat eftir með sárt ennið í 4. sæti en hún á besta tíma ársins. Aðeins þrjár fremstu í hvorum undanúrslitariðli komust áfram í úrslitin.
Svo virtist hins vegar sem að hin rússneska Bazdireva hefði stigið út fyrir hlaupabrautina þegar hún tróð sér fram úr Anítu í lokin, og ýtt aðeins við íslensku hlaupadrottningunni. Því hafa Bretar lagt fram kæru og ekki ólíklegt að Bazdireva verði dæmd úr keppni. Þar með myndi Aníta færast upp í 2. sæti og Meadows í 3. sæti, og keppa þar með í úrslitunum.