Arna Stefanía með nýtt met

Arna Stefanía Guðmundsdóttir.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr FH bætti í dag aldursflokkametið í flokki 20-22 ára stúlkna í 400 metra grindahlaupi á Flanders Cup í Antwerpen í Belgíu í dag.

Arna Stefanía sigraði í hlaupinu og bætti sinn besta árangur en hún hljóp á tímanum 57,60 sekúndum.

Fjóla Signý Hannesdóttir HSK keppti í öðrum riðli og fékk tímann 64,27 sekúndum.

Guðmundur Heiðar Guðmundsson úr FH varð í þriðja sætinu á tímanum 55,06 sek, sem er við hans besta árangur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert