Gunnar Nelson var í ítarlegu viðtali við Youtube rás UFC sambandsins fyrir bardagann gegn Albert Tumenov. Þar fer hann í sjósund, borðar svið og skellir sér á langbretti eins og Walter Mitty.
Gunnar sýnir einnig aðstöðu Mjölnis, talar um hvað margir séu að æfa og hvað aðstaðan hafi stækkað á undanförnum árum. Þá skellir hann sér í matarboð með fjölskyldu sinni og borðar svið þar sem hann upplýsir að hann byrji alltaf á augunum.
Þá lýsa foreldrar hans hve stoltir þeir séu en Gunnar tileinkaði sigurinn á Tumenov einmitt móður sinni. Sá var sjötti sigur Gunnars í UFC en búist er við því að hann komist aftur inn á topplistann í veltivigt í deildinni. Hann var dottinn af listanum en öruggur sigur á Tumenov ætti að koma honum aftur inn á hann.
Þetta var aðeins annað tap Tumenov í UFC og þriðja tap hans á MMA-ferlinum.