Anton Sveinn McKee tryggði sér rétt í þessu sæti í undanúrslitunum í 100 metra bringusundi karla á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug í London.
Anton var í fimmta riðli af sjö og varð annar í honum á 1:00,79 mínútu en Íslandsmet hans í greininni er 1:00,53 mínúta.
Aðeins sex keppendur í tveimur sterkustu riðlinum syntu á betri tíma en Anton sem kemur því sjöundi inn í undanúrslitin sem fara fram síðdegis í dag.
Eygló Ósk Gústavsdóttir keppir í undanrásum í 200 m baksundi sem voru að hefjast.