Úrslitaleikur Íslandsmóts meistaraflokks í snóker fór fram á Billiardbarnum í Faxafeni 12 í dag. Jóhannes B. Jóhannesson og Þorri Jensson mættust í úrslitum og hafði Jóhannes sigur 9:3.
Þetta er í 6. sinn sem Jóhannes hampar Íslandsmeistaratitli á ferlinum.