FH-ingurinn Ari Bragi Kárason gerði það gott á frjálsíþróttamóti í Cork á Írlandi í gær þar sem hann bætti sinn tíma í 200 m hlaupi um 16/100 úr sekúndu og var einnig undir sínum besta tíma í 100 m hlaupi en þá var meðvindur aðeins yfir löglegum mörkum.
Ari Bragi hljóp 200 m á 21,30 sekúndum og bætti eins og fyrr segir fyrri árangur sinn um sextán hundraðshluta úr sekúndu. Meðvindur var undir mörkum og því tíminn löglegur. Hann fór síðan 100 metrana á 10,50, sem er undir Íslandsmetinu, en tíminn fæst ekki skráður sem met þar sem vindur var aðeins yfir mörkum. Jón Arnar Magnússon á Íslandsmetin í 100 og 200 m hlaupi, 10,57 sekúndur og 21,17. Metin eru orðin um 20 ára gömul og nálgast Ari Bragi þau óðfluga.
Þá hljóp Bjartmar Örnuson 800 metrana á 1.51,97 mínútum á móti í Sollentuna í Svíþjóð í gær. Hann bætti einnig sinn fyrri árangur. Bjartmar mun á næstunni taka þátt í fleiri mótum í Svíþjóð.