Þrennar stystur unnu til verðlauna í unglingaflokki á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum í Maribor í Slóveníu í gær. Um er að ræða Gyðu og Stellu Einarsdætur, Ástu og Heiðu Kristinsdætur og Tinnu og Tönju Ólafsdætur.
Gyða og Stella voru saman í stúlknalandsliðinu sem varð Evrópumeistari. Ásta og Tinna áttu einnig sæti í stúlknaliðinu sem varð Evrópumeistari með miklu glæsibrag og talsverðum yfirburðum. Systur Ástu og Tinnu, Heiða og Tanja, voru í blandaða unglingaliðinu sem hreppti bronsverðlaun eftir spennuþrungna bið eftir einkunn dómaranna í lokagreininni, dansi. Tanja var annar fyrirliða blandaða liðsins.