Erla Sigurlaug Sigurðardóttir vann nú fyrir skömmu til bronsverðlauna í fjallahjólreiðum á Smáþjóðaleikunum í San Marínó.
Tími Erlu var ein klukkustund og fjórar mínútur og var hún fimm mínútum á undan Kolbrúnu Dröfn Ragnarsdóttur sem varð fjórða. Kristín Edda Sveinsdóttir kláraði ekki keppnina.
Erla Sigurlaug var þarna að vinna sín önnur verðlaun á leikunum, en hún vann til silfurverðlauna í götuhjólreiðum á þriðjudag.