Það var góð uppskera hjá Íslandi í einstaklingsflokki kvenna í bogfimi með trissuboga (e. compound) á Smáþjóðaleikunum í San Marínó.
Helga Kolbrún Magnúsdóttir tryggði sér gullverðlaun, en hún hafði betur gegn keppanda frá Lúxemborg í úrslitaviðureigninni 140:129. Þá tryggði Margrét Einarsdóttir sér brons, en hún lagði heimakonu í viðureign sinni um bronsið 137:133.
Fyrr í dag tryggðu svo tvær íslenskar sveitir sér brons með trissuboga, þ.e. blandaða sveit Íslands og karlasveitin.