Fjöldi mótsmeta féll og margir bættu sinn besta árangur þegar Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum, hjá 11-14 ára, fór fram á Kópavogsvelli um helgina.
Ljósmyndari Morgunblaðsins og mbl.is, Árni Sæberg, var á mótinu og tók meðfylgjandi myndir.
Fulltrúar HSK/Selfoss unnu til flestra verðlauna á mótinu og hlutu 21 gull, 25 silfur og 25 brons. FH kom næst með 14 gull, 5 silfur og 5 brons og Breiðablik varð í 3. sæti með 9 gull, 11 silfur og 8 brons.
Öll úrslit á mótinu má sjá á mótasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands.