Anton Sveinn í undanúrslit á EM

Anton Sveinn Mckee er kominn í undanúrslit á EM.
Anton Sveinn Mckee er kominn í undanúrslit á EM. mbl.is/Kristinn Magnússon

Anton Sveinn Mckee kom fyrstur í mark í undanriðli þrjú í 100 metra bringusundi á Evrópumótinu í Glasgow í Skotlandi í dag og tryggði sér í leiðinni sæti í undanúrslitum sem fram fara síðar í dag.

Anton synti á 1:00,90 mínútum, 0,37 sekúndum frá eigin Íslandsmeti. Anton var með fimmtánda besta tímann af öllum í undanrásunum, en sextán bestu fóru áfram í undanúrslit. 

Heimsmetshafinn Adam Peaty hafði mikla yfirburði og synti á 57,89 sekúndum og bætti í leiðinni eigið mótsmet. Undanúrslitin fara fram kl. 16:39.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert