Breski kaupsýslumaðurinn Jim Ratcliffe, sem er Íslendingum hvað kunnastur vegna jarðakaupa sinna á Norðausturlandi, er sagður ætla að styðja við stórlið Sky í hjólreiðum á komandi árum með meira fjármagni en liðið hefur haft til umráða undanfarin ár. Team Sky hefur verið sigursælasta lið síðustu ára á stærstu mótum ársins.
Núverandi aðalstyrktaraðili liðsins, Sky, hafði tilkynnt að fyrirtækið myndi hætta að styðja við hjólaliðið eftir tímabilið sem nú er nýhafið. Samkvæmt hjólafréttasíðunni Cycling weekly mun fyrirtæki Ratcliffe, breska og svissneska efnavinnslufyrirtækið Ineos, er sagt munu styðja hjólaliðið, en formlega á að tilkynna um samninginn fyrir Giro d‘Italia keppnina sem hefst í maí, en það er fyrsta stóra fjöldaga keppni ársins (Tour of France og Vuelta a España eru hinar).
Velta Team Sky er um 34 milljón pund á þessu ári og er er það umtalsvert meira en næstu liða þar fyrir neðan. Áform Ratcliff benda hins vega til þess að hann vilji setja enn meiri fjármuni í liðið.
Ratcliffe er sjálfur þríþrautamaður og hefur Ineos stutt við Ineos Team UK siglingaliðið undanfarið með um 110 milljónum á ári.
Team Sky framlengdi nýlega samning sinn við stærstu stjörnu liðsins Chris Froome til ársins 2020, en hann hefur sigrað Tour de France fjórum sinnum og Giro d‘Italia og Vuelta a Espana einu sinni hvora keppni. Þá var samningurinn við Geraint Thomas framlengdur til 2021, en hann sigraði Tour de France í fyrra og samningurinn við Egan Bernal, björtustu von liðsins, var framlengdur til 2023.
Ratcliffe hefur á undanförnum árum keypt fjölda jarða á Íslandi, en hann keypti Grímstaði á Fjöllum árið 2016. Þá hefur hann keypt jarðir við Hafralónsá í Þistilfirði og þrjár laxveiðijarðir í Vopnafirði. Til viðbótar á hann 86,67% hlut í veiðifélaginu Streng ehf. eftir að hafa keypt eignarhaldsfélagið Grænaþing af Jóhannesi Kristinssyni. Strengur er með Selá og Hofsá í Vopnafirði á leigu og á auk þess sex jarðir í Vopnafirði að hluta eða að öllu leyti. Einnig á félagið nýlegt veiðihótel við Selá. Fyrir um þremur árum var greint frá því í Morgunblaðinu að Jóhannes og Ratcliffe ættu samtals að hluta eða öllu leyti 23 af 70 jörðum í héraðinu.
Ineos er metið á um 35 milljarða punda og á Ratcliffe 60% hlut í félaginu, en hagnaður fyrirtækisins á síðasta ári nam rúmum 2,2 milljörðum punda. Ratcliffe er stofnandi félagsins og forstjóri, en félagið er með 17 þúsund starfsmenn á 67 stöðum í 16 löndum og er með höfuðstöðvar í Sviss. Hann útskrifaðist sem verkfræðingur frá Birmingham-háskóla.
Meðal þess sem Ineos framleiðir er leirsteinsgas sem er ein tegund jarðgass, byggingarefni, plast og ýmislegt úr jarðeldsneyti.
Eignir Ratcliffe eru metnar á 21 milljarð punda en þær jukust um meira en 15 milljarða punda á milli áranna 2017 og 2018 og er hann talinn ríkasti Bretinn samkvæmt Sunday Times.