Hlaupakonan Caster Semenya kom fyrst í mark í 800 metra hlaupi á Demantamóti í Dóha í Katar í dag. Var það síðasta hlaupið hjá Semenya, áður en hún þarf að taka inn lyf sem bæla niður testósterónmagnið í líkama sínum.
Semenya kom í mark á 1:54,98 mínútu og vann hlaupið með yfirburðum. „Engin manneskja getur stöðvað mig frá frá því að hlaupa," sagði Semenya eftir hlaupið, en hún er tvöfaldur Ólympíumeistari og þrefaldur heimsmeistari.
Mótið sem hún keppti á í dag fellur ekki undir nýju reglurnar, þar sem þær hafa ekki enn tekið gildi.
Suður-afrísk stjórnvöld hafa opinberlega lýst yfir stuðningi við Semenya og sakað IAAF um fordómafulla hegðun sem sundri frekar en að sameina íþróttafólk. Almenningur í Suður-Afríku og liðsfélagar Semenya í suður-afríska landsliðinu hafa einnig sýnt henni stuðning. „IAAF er á tilgangslausum, niðurlægjandi nornaveiðum,“ sagði spretthlauparinn Anaso Jobodwana.