Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee lauk keppni í 200 metra bringusundi á Pro Swim Series í Grennsboro, Vestur Virginíu í dag. Hann gerði sér lítið fyrir og kom fyrstur í mark á 2:11,90 mínútum.
Tíminn er þremur sekúndum hraðari en sá sem hann skilaði í undanrásum fyrr um morguninn. Á meðal þeirra sem Anton sigraði í sundinu var Andrwe Wilson, sem var á verðlaunapalli á HM Kóreu í sumar.
Anton hefur þegar tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó næsta sumar, einn íslenskra íþróttamanna. Undirbúningur hans fyrir leikana er hafinn.
Í gær synti hann 100 metra bringusund og hafnaði í 3. sæti á 1:01,25 mínútu, eftir að hafa synt á 1:00,94 í undanrásum.
Í byrjun næsta mánaðar keppir Anton Sveinn á EM í 25 metra laug í Glasgow í Skotlandi þar sem hann keppir í 50, 100 og 200 metra bringusundi.